Fundur í utanríkismálanefnd 26. mars 2012 - opinn fréttamönnum
Fyrsti dagskrárliður á fundi utanríkismálanefndar Alþingis mánudaginn 26. mars, kl. 15.15, verður opinn fréttamönnum.
Rætt verður um stöðu aðildarviðræðna við ESB. Gestir verða Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Dagskrá fundarins.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir.
Fundurinn er opinn fréttamönnum en er hvorki tekinn upp né sent beint út frá honum á vegum Alþingis.
Fundurinn verður haldinn með stoð í nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.